|
|
05.06.2006 01:27:35 / sisi
Já það munar ekkert um það bara tvö blogg á einu kvöldi og meira
að segja í rauninni þrjú því eftir að hafa sýnt þennan líka
rosalega bloggdugnað fyrr í kvöld ákvað ég nú að fara aðeins að
tölvunördast og varð afraksturinn bara glænýtt blogg enda er ég
komin með ansi mikið ógeð á þessu! Þó hef ég nú átt ansi góðar
stundir hérna í næstum 2 ár og látið gamminn geysa um hin ýmsu
málefni sem verður nú að viðurkennast að eru mis merkileg! En það
var víst kominn tími til að breyta og býð ég ykkur því velkomin á
sigurlina.bloggar.is
...já ég veit ekki mjög töff nafn en öll þau flottu voru bara
upptekin og ég heiti víst Sigurlína svo.... 
Sjáumst þar
»
04.06.2006 22:37:54 / sisi
»
31.05.2006 16:38:13 / sisi
Það er greinilegt að sumarið er komið með öllu sem því fylgir
eins og t.d lyktinni af nýslegnu grasi, ísferðum, rómantík,
þægindum, sól, fótbolta og já síðast en ekki síst bloggleti! Alveg
merkilegt hreint hvað maður nennir bara alls ekki að blogga á
sumrin, en svona er það víst bara þar sem maður getur verið að gera
svo margt annað skemmtilegt en að hanga í tölvunni! Ég ætla þó að
reyna að láta eitthvað í mér heyrast í sumar en lofa þó ekki
miklu!
En af mér er bara allt ljómandi gott að frétta, búið að vera
alveg frábært hérna á Akureyrinni, þó að maður sé kannski ekki
búinn að gera neitt stórkostlega mikið, nema slappa af,
kúra og svoleiðis þægilegheit. Afrekaði það þó að fara í eitt
partý á kosningadaginn sem hafði upp á allt að bjóða sem gott partý
þarf að hafa eins og t.d töframann sem sýndi alveg
snilldartakta! Enda er búið að bóka kauða á tommaraættarmótið í
sumar! Á sunnudagskvöldið "grilluðum" við vinirnir svo saman þar
sem ég, Ester og Jónsi grilluðum þessa líka
dýrindishamborgara ....reyndar ekki á sama grilli og
allir hinir þar sem okkur fannst nú bara mun þægilegra að nýta
okkur grillið góða í sjoppunni! við ansi mikla hneikslan
sumra! Svo er bara skipulögð suðurferð aftur á morgun
...ég treysti því þó að stelpurnar fyrir sunnan verði
duglegar við að hugga mig og gera eitthvað skemmtilegt með mér!
og er stefnan strax sett á mikla stuð helgi, tónleikar, bjór og
mikið fjör!!
Já og að lokum fyrir þessa forvitnu þá eru loksins blessuðu
einkunnirnar komnar í hús, meðaleinkunnin hélst réttu megin við
níuna og er ég bara hæst ánægð með það Náði þar
að auki að halda markmiðinu mínu sem ég setti mér þegar ég
byrjaði í háskóla og er ekki neitt lítið hissa á því
svona miðað við dugnaðinn eða réttara sagt skort á honum
þessa önnina! 
En jæja nóg komið í bili
Bæjó!
»
23.05.2006 20:18:58 / sisi
Jæja bara ansi langt síðan síðast hjá
mér! og ástæðan er sko ekki bloggleti heldur er um að kenna alveg
óendanlega mikilli vinnu má segja að ég hafi bara eiginlega verið í
Sóltúni frá hálf fjögur á föstudaginn til fjögur í gærdag ef undan
eru skildar næturnar! ....en það var sko vel þess
virði því ég er mætt á Akureyri núna! Ég, mamma og
pabbi brunuðum norður í gær í alveg sannkölluðu sumarveðri eða hitt
þó!! hvað er eiginlega málið með veðrið!! þá á sko að heita sumar!
samt alveg tíbískt, var alveg magnað veður meðan ég var í prófum og
síðan í þessa örfáu daga sem ég fæ í frí er bara snjókoma og
vesen! En í tilefni af þessu veðri var dagurinn í dag
vægast sagt tekinn í afslöppun, búin að liggja eins og skata í
allan dag og glápa á prison break og borða snakk og nammi. Og
jeminn segi ég bara! hvað þetta er spennandi og ég held ég verði
bara að vitna í Monicu og segja HabaHaba gaurinn sem leikur í þesu
fer sko pottþétt á 5 stjörnu listann minn!! 
En talandi um stjörnur þá barasta verð ég að segja frá algjörri
snilld, yfir óendanlega leiðinlegu júróvisjón á fimmtudagskvöldið
skemmtum við Tinna okkur ekki neitt lítið yfir síðu sem Einar
bendir á á blogginu sínu, http://www.myheritage.com/ og
er þetta síðan og þarna semsagt setur maður mynd af sér og þá kemur
síðan með stjörnur sem maður líkist ...þetta er nú
svosem ekkert í frásögur færandi nema hvað að hún Tinna virðist
ekki eiga framtíðina fyrir sér í holívúd þar sem hún var talin
líkjast Barry Levine (sem er gamall kall), Elton John kom einnig
upp sem og Robert Downey Jr. sem er nú allavega sætur en það sem
toppaði allt var þegar sagt var að hún væri lík Ruben Studdard sem
var í American Idol!! úff hvað ég hló mikið og mæli ég með því að
fólk skoði þetta þar sem þetta er ekki neitt lítið fyndið! Tinna
greyið líktist allavega aðallega karlmönnum og þá helst gömlum
köllum með gleraugu! Ég nenni nú ekki að eyða tíma í að tala um
júróvisjón en verð þó að segja að mér fannst atriðið hennar silvíu
snilld og var tapsára ég alveg drullusvekkt með að komast ekki
áfram!
En jæja pizzan mín er víst að mæta í hús þannig að ég læt þetta
duga í bili
Bæjó Sísí hamingjusama! 
P.s Árni innilegar hamingjuóskir með afmælið!!
»
18.05.2006 17:46:24 / sisi
Já ég held barasta að ég hafi toppað sjálfa mig núna! Skellti
mér nefnilega aðeins út með Rebekku í dag og svo þegar ég kom heim
aftur fatta ég að snillingurinn ég hafði skilið lyklana mína,
semsagt bíllyklana og húslyklana eftir inni og ekki nóg með það
heldur símann minn líka! Hvað gera bændur þá! En sem betur fer
ákvað ég að vera hagsýn um daginn og fékk mér nýtt númer hjá
símanum og á þar af leiðandi tvo síma og var með annan
þeirra á mér og náði að hringja í Tinnu systur sem kom og bjargaði
mér ....en semsagt ef þið hafið eitthvað ætlað að ná í
mig í dag þá svaraði ég ekki í símann þar sem hann var læstur
inni!
Ætli maður verði svo ekki aðeins að blogga um gærkvöldið! Jeminn
hvað ég var svekkt! ....kvöldið var samt ansi
skrautlegt í heildina litið, Rebekka er svo góð vinkona að hún
bauðst til þess að horfa með mér á leikinn ...takk kærlega
fyrir það elskan!! ...en við vorum nú aðeins seinar
fyrir sem leiddi til þess að á gjörsamlega öllum stöðum bæjarins
var gjörsamlega troðfullt, meira að segja á Péturspöbb upp á höfða
Þetta olli því að ég missti nú af öllum fyrri hálfleik meðan
við rúntuðum á milli staða, ég alveg að drepast úr stressi en var
nú sem betur fer í símasambandi, missti mig alveg þegar ég
fékk fréttirnar um rauða spjaldið og fagnaði auðvitað alveg
gífurlega þegar markið kom! en að lokum fékk Rebekka þá
snilldarhugmynd að kíkja á Kringlukrána og þar fengur við sæti og
ekki nóg með það heldur borð líka og gátum því setið þar í hinum
mestu makindum, borðað pizzu og drukkið bjór! Ég náttúrulega lifði
mig inn í leikinn að vanda, öskraði og æjaði, stökk upp og grúfði
andlitið í höndunum á mér ...og það sko áður en mörkin komu
frá Barcelona því þá gjörsamlega missti ég mig og mér til mikillar
gleði náði Rebekka öllum herlegheitunum á Vídjó Reyndar sem
betur fer bara fyrra markinu þar sem ég gjörsamlega trompaðist
þegar seinna markið kom og mun parketið á Kringlukránni væntanlega
ekki bíða þessa bætur þegar stólnum sem ég sat á var gjörsamlega
dúndrað í gólfið! og ekki nóg með það heldur var ég
ansi nálægt því að berja strákfíflin á næsta borði en náði nú sem
betur fer að hemja mig og rukum við út af staðnum um leið og
norsarafíflið flautaði hann af! Já kvöldið var semsagt svona í
stuttu máli hjá mér 
Annars eru undanfarnir dagar búnir að vera nokkuð rólegir, var
bara í fríi í vinnunni þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag, en bæti
mér það svo heldur upp um helgina með því að vinna tvöfalt bæði á
laugar og sunnudag sem þýðir semsagt ekkert júróvisjóndjamm á mér!
En það verður barasta að hafa það ....verð allavega að
vinna með Evu Björk þannig að við gerum nú barasta gott úr þessu!
Síðan er það bara Akureyri á mánudaginn og vá hvað ég hlakka til!

En jæja ætla að fara að gera eitthvað af viti hérna heima hjá
Tinnu
skemmtið ykkur vel yfir júróvisjón í kvöld og ég segi bara áfram
Silvía!!!
Kv. Sísí crazy!
»
17.05.2006 11:57:41 / sisi
Jæja maður verður víst að láta heyra eitthvað í sér frá
reykjavíkinni, en ég allavega mætti hingað galvösk á mánudaginn,
brunaði hingað ásamt henni Hröbbu og fór víst aðeins of hratt að
mati sumra! ...en ég skal lofa að fara varlega næst!
Skellti mér beint á eitt stykki kvöldvakt og var ekki neitt lítið
gaman að hitta allt liðið aftur þó það myndi nú misjafnlega vel
eftir mér!
Þrátt fyrir að það sé auðvitað æðislegt að vera hérna í
reykjavíkinni, íbúðin sem ég er í er alveg frábær o.s.frv. er nú
ekki laust við að smá söknuður til Akureyrar og fólksins þar hafi
gert vart við sig ...enda er strax búið að skipuleggja
ferð norður næsta mánudag þar sem ég er í ansi löngu
vaktafríi ....og já ég veit að ég er algjör auli! En
til að létta mér nú aðeins lífið þá var sko haldið í búðirnar í gær
og 20% afslöttur af öllum vörum í 17 hentaði mér nú ansi vel og
vory því keyptar buxur, 4 bolir, 2 peysur, pils, húfa, hárspöng og
sólgleraugu og maður er barasta tilbúinn í sumarið! Kaupin á
buxunum voru ekki neitt lítið ánægjuleg tók nefnilega í fyrstu
tilraun 5 buxur með mér inn í klefann og kom ekki einum einustu upp
fyrir rassinn á mér við alveg gífurleg fagnaðarlæti
...ekki neitt lítið stolt af mér, sérstaklega í ljósi þess að ég
var að koma úr próftíð þar sem maður er nú vanur að horast
niður!
Gærkvöldið var svo snilldin ein, var nefnilega svo heppin að
áskotnast DIRTY DANCING á dvd, búin að leita að henni í mörg ár
þannig að það getið rétt svo ímyndað ykkur hamingjuna sem er núna
ríkjandi, þannig að það var keypt endalaust af nammi og svo legið
upp í rúmi og horft á þessa snilld ...horfði á lokaatriðið
ekki nema þrisvar sinnum!! ...og það besta er að í aukaefninu
er sko einn liður "learn to Dirty Dance" þannig að þið megið búast
við mér flottri á dansgólfinu næsta haust! ....og Ester
okkur hefði sko ekki veitt af þessu í gamla daga í öllum
lyftuæfingunum!! hehehe
Í dag eða réttara sagt kvöld er svo merkiskvöld! nefnilega
úrslitaleikurinn í meistaradeildinni og ég fæ bara fiðring í magann
við að hugsa um leikinn því stressið er orðið svo gífurlegt! ég
veit reyndar ekki alveg hvar og hvernig ég ætla að horfa á leikinn
þar sem ég treysti mér ekki í að horfa á hann á bar þar sem ég verð
svo óendanlega pirruð að hlusta á heimska fulla kalla bulla algjöra
steypu um fótbolta ....ég er sko alls ekki að segja að allir
kallar sem eru að horfa á leikina á börum séu þannig en þeir örfáu
sem eru þannig eru algjörlega óþolandi! Á það líka sjálf til að
verða svona örlítið æst yfir leikjum og langar ekki beint að vera á
almannafæri þegar það gerist! Það var sko ekki að
ástæðulausu sem Inga Huld sagði Jónsa að hann myndi hætta með mér
ef hann myndi horfa á Arsenal leik með mér! 
En jæja þetta er orðið alltof langt ...Myndirnar hennar
Rebekku síðan á föstudaginn komnar inn hér
Bæjó!
»
14.05.2006 13:38:43 / sisi
Já vefstjórinn klikkar ekki! ....myndirnar síðan á
föstudaginn komnar inn, hér, setti þær meira að
segja strax inn í gærmorgunn en tókst á einhvern undraverðan hátt
að klúðra því þannig að þær duttu allar út og þar sem ég er nú ekki
sú þolinmóðasta og skapbesta treysti ég mér ekki aftur í þetta fyrr
en núna! En þetta eru nú samt ekki mjög margar myndir þar sem
vélin var alveg á nippinu með að verða batteríslaus en þetta er nú
allavega eitthvað!
Kvöldið var alveg snilldin ein! Þemað hjá okkur á öðru árinu var
appelsínugulur og við stóðum okkur heldur betur í stykkinu og þegar
litið var í snöggu bragði yfir amor um kvöldið var þessi glæsilegi
litur ansi áberandi! En þetta var þvílíka stuðið, hittumst fyrst
heima hjá önnu maríu þar sem það var grillað, farið í sing star og
fleira ...ég reyndar gerði öllum viðstöddum þann greiða
að taka ekki þátt í sing starinu Síðan var haldið í bæinn í
misgóðu ástandi þar sem var bjór og skot í boði eirar og var
mannskapurinn heldur betur hress og dansað var fram á rauða nótt!
Þegar heim kom um nóttina var málgleðin að venju ansi mikil og fékk
Jónsi greyið að heyra allar sögurnar frá kvöldinu ....en það
er nú svosem ekki í framsögur færandi nema hvað morguninn eftir þá
mundi ég auðvitað ekkert eftir að hafa sagt honum allar þessar
sögur og fékk greyið að heyra þetta allt aftur ...eða
þangað til að hann benti mér loksins á að hann hefði nú fengið að
heyra þetta allt saman um nóttina! Já það er nú merkilegt hvað
maður er nú alltaf rosalega skemmtilegur þegar maður er búinn að fá
sér svona aðeins í tánna! 
En jæja þetta getur víst ekki orðið lengra að sinni þar sem ég
þarf að fara að skella mér á völlinn!
Næst læt ég væntanlega í mér heyra frá reykjavíkinni!
Heyrumst og áfram Þór!!! 
»
11.05.2006 20:58:30 / sisi
»
09.05.2006 18:08:20 / sisi
Jæja þá er loksins farið að styttast í annan endann á þessari
blessuðu próftíð lyfjafræðin var kláruð í dag og þá er bara
hjúkrunin eftir á fimmtudaginn og jeminn hvað ég get ekki beðið! Er
sko alveg að mygla yfir þessu helvíti, svíður í augun af þreytu og
baugarnir ná hálfa leið niður á brjóst! En þessu er sem betur
fer öllu að ljúka, nú verður bara lesið eins og brjálæðingur í
kvöld og á morgun ....ég meina hver segir að það sé nokkuð
mál að frumlesa eins og einn sex eininga áfanga á einum og hálfum
degi ekki eins og maður hafi ekki gert það áður! ....og svo
tekur við svefn og aftur svefn á fimmtudaginn!!!
Reyndar hefur það að læra hjúkrun ótvíræða kosti í för með sér
eins og t.d aðgang að hjúkrunarstofunni með alveg yndislegum
rafmagnsrúmum og er ekkert betra en að skella sér þangað, hvíla sig
og láta fara vel um sig við lesturinn. Jafnframt höfum við líka
þennan fína sólpall sem kom nú að góðum notum um helgina þegar
setið var úti við lestur og sólað sig. Þannig að það er semsagt
ýmsilegt sem við finnum okkur til dundurs hérna í skólanum og er
Baddý með þessa líka
fínu sönnun þess á blogginu sínu. Tókum okkur nefnilega til um
daginn og ákváðum að hressa okkur með því að skella okkur í
handahlaup ...sem hafa nú aldrei verið talin mín
sterkasta hlið sælla minninga síðan sprikla lét mann vera í
aukatímum í þessu í gamladaga! En þessir aukatímar gerðu greinilega
ansi lítið gagn því sjaldan eða jafnvel aldrei hafa sést jafn
hörmulegir taktar eins og sést glögglega á vídjóinu sem baddý
skellti á netið! 
En svo er auðvitað það besta og skemmtilegasta við prófin
framundan á föstudaginn, já ég er sko að tala um próflokadjammið!
og ef fólk langar að hitta hressar og skemmtilegar hjúkkur og iðjur
þá er amor sko málið á föstudaginn, megið búast við því að sjá mig
og mínar elskulegu bekkjarsystur í einhverri flottri
appelsínugulri múnderingu enda er það víst þemað fyrir okkur á 2.
ári ...en vá það er sko alltof langt síðan síðast enda
sást það greinilega í prófinu í morgun þegar rebekka opnaði
magicinn sinn og það heyrðist svona "bjór-hljóð" og við bara
gjörsamlega sleiktum út um og er því spenningurinn orðinn nokkuð
mikill! Síðan er auðvitað stórleikur í fótboltanum á
sunnudaginn, KA-Þór, gerist ekki betra og maður lætur sig auðvitað
ekki vanta á hann og síðan verður bara brunað suður á
mánudagsmorguninn og mætt á kvöldvakt þá um kvöldið og sumarið
loksins byrjað fyrir alvöru!!
En jæja farin í hjúkrunina....
»
06.05.2006 13:09:40 / sisi
Passaðu þig á rjómanum á
gólfinu ...já
þetta er ekki eitthvað sem maður heyrir oft þegar maður ætlar að
fara á fætur á morgnana en þetta fékk ég samt sem áður að heyra
í morgun! þetta tengist þó ekki einhverju kinkí kynlífi heldur
liggur að baki þessu nokkuð löng saga og ansi skondin ...þó mér
hafi kannski ekki þótt það neitt rosalega fyndið í nótt!
En málið var allavega það að eftir ekki nema 13 tíma
lestur í gær var ég alveg óendanlega þreytt og þótti okkur því
tilvalið að sofa í sveitinni í rúmi sem er já aðeins betra en
rúmið mitt og svo til að fullkomna þetta alveg er náttúrulega
svo yndileg kyrrð í sveitinni og svo framvegis! ...en neinei ekki í þetta
skiptið Það fyrsta sem við sáum þegar við renndum upp
að húsinu var eitt stykki srákur að pissa fyrir utan og það gaf
manni nú vísbendingu um hvað var framundan ....nefnilega alveg
magnað partý! ég var nú reyndar algjör party pooper fór bara
beint inn í herbergi og þetta er sko NB þriðja djammlausa helgin
mín í röð! já geri aðrir betur, reyndar líka einu djammlausu
helgarnar á árinu ....en það er nú bara aukaatriði! Ég
hélt nú samt að ég gæti nú alveg sofið þó það væri nú eitt
stykki partý í gangi enda ekki fræg fyrir vandamál með svefn! en
nei það var nú af og frá enda snilldarpartý þarna á ferð með
öllu tilheyrandi eins og bálför, slagsmálum, öskurkeppni og
síðast en ekki síst rjómasprautun á okkur fólkið sem reyndi að
sofa! mjög svo skemmtilegt! ....ég er allavega spennt að fá
að taka þátt í svona partý í framtíðinni þegar tilhugsunin um
endalausan lyfjafræðilestur er ekki að trufla mann! Mér tókst nú
sem betur fer að sofna að lokum eftir að ákveðinn maður hafði
tekið sig til og kýlt mann og annan og bókstaflega hent
mannskapnum út úr húsinu!
En svo maður breytir nú um umræðuefni
þá virðist sumarið vera komið hérna á akureyri, næstum 20 stiga
hiti, sól og blíða og grasið barasta orðið grænt ....og ég inni að læra! pabbi sér
þó auðvitað um sólböðin fyrir mig, enda ekki við öðru að búast
þegar hann er annars vegar! ...Reyndar eru það ömurlega sem fylgir
sumrinu líka mætt á svæðið, þ.e.a.s góðvinkonur mínar
randaflugurnar og mætti ég einni við mikinn fögnuð í morgunsárið og
fylgdu þessa sympatísk viðbrögð, semsagt aukinn hjartsláttur,
æðarnar í húðinni drógust saman, ég fölnaði öll upp, starfsemi
meltingarvegarins minnkaði o.s.frv.... og hver segir svo að maður
sé ekki neitt búinn að læra!! 
En talandi um það þá held ég að ég
reyni nú að fara að byrja þar sem klukkan er víst farin að ganga
tvö!!
»
04.05.2006 14:49:04 / sisi
Ég vil byrja á því að þakka fyrir
alveg frábærar undirtektir við síðasta blogg! …sjaldan séð jafn skemmtilegar
umræður á þessari síðu en ég held ég láti samt stökurnar vera í
þessu bloggi! Þið verðið bara að láta bókina “hulunni
svipt af sakleysi sísíar” duga ....en hún er
væntanleg í betri bókabúðir fljótlega, á bara eftir að ganga frá
smá smotterí! Ætlum einmitt að tala við rektor á næsta
rektorsfundi og fá styrki fyrir henni enda er háskólinn nú
svo ríkur að hann fer létt með að styrkja svona
heimsbókmenntir!
En svo maður skipti um
umræðuefni ...þá er maður búinn í fyrsta prófinu, gekk reyndar
ekki alveg jafn vel og það átti að ganga en engu að síður bara
ágætlega! Hafði þó smá áhrif að mér tókst í annað skiptið á ævinni
að sofa yfir mig í morgun! ….einhverra hluta vegna var bara
svo ótrúlega gott að kúra að ég ákvað að snúsa einu sinni og það
endaði bara með miklu lengri blundi en 10 mín! og þetta eyðilagði
nú pínu allt skipulagið sem hin skipulagsóða ég var búin að gera
En hitt skiptið sem ég svaf yfir mig var
sko notabene þegar ég var í 4. bekk í grunnskóla, en þá hafði
rafmagnið farið af og útvarpsvekjarinn hjá m&p
klikkaði …ég fór
þá líka og keypti mér sjálf vekjaraklukku og hef ekki sofið yfir
mig þangað til í dag!
En vá skemmtilegt blogg hjá mér maður
að vera að tala um að sofa yfir sig ...en málið er víst þegar maður
gerir mest lítið annað að lesa að þá verður fátt sem maður getur
talað um ....en annars er bara allt ljómandi að frétta af
mér, er barasta að springa úr hamingju þessa dagana ...eða
svona fyrir utan þessi leiðinlegu próf en þau verða nú sem betur
fer fljótlega búin!
Jæja læt þetta duga í bili hin
yndislega skemmtilega lyfjafræði bíður mín....
Kv. Sísí
»
01.05.2006 10:53:51 / sisi
Ohh ég er svo engan veginn að
nenna að vera í prófum þessa dagana þar sem lífið hefur upp á
svo margt annað skemmtilegt að bjóða! Því verður nú að segjast
eins og er að dugnaðurinn og einbeitingin hefur oft verið
meiri ...en maður
gerir þó sitt besta! Merkilegt samt hvað maður er mikill
snillingur í að finna sér eitthvað annað að gera, t.d er
örugglega ekki til það blogg á netinu sem ég hef skoðað og ég
hef örugglega aldrei verið jafn dugleg við að drekka vatn þar
sem maður getur tekið sér smá pásu og gert sér ferð til að fylla
á flöskuna! En dagurinn einkennist þessa dagana af löngum
setum lokuðum inn á bókasafni með eyrnatappana lengst inn í
eyrum og endalaus sérlyfja og samlyfjaheiti á sveimi inn í
hausnum
....ég meina hvernig í andsk... á maður að muna orð eins og t.d
Cyclophosphamide eða kannski er þetta ekki svo gott
dæmi þar sem þetta lyf myndar orð sem mögulegt er að leggja á
minnið
....sem mörg önnur lyf gera nefnilega ekki. 
Það er nú
samt ýmislegt skemmtilegt sem maður er að lesa og fékk ég t.d
vísindalega sönnun á þeim grun mínum að karlmenn eru hræddari við
nálar en konur þar sem það stendur skýrum stöfum í glósunum frá
kennaranum mínum sem er NB kall! pabbi er náttúrulega eitt frægasta
dæmið um þetta þar sem það steinleið nú einu sinni yfir kallin við
það að sjá strák sprauta sig með insúlín penna!!! Siggi
Bjarklind klikkar heldur aldrei og hér er bein tilvitnun í
hann:
"
Það er til
stórkostleg innrömmuð graftrarkennd sýking í hálsinum á ungu fólki
sem heitir peritonsillarabscess, við þessu er til óskaplega einföld
og dramatísk lækning,
maður einfaldlega tekur bara sjúklinginn, skellur honum á baki,
staðdeyfir á honum hálsinn, taka pjang eða æðatöng, reka í bólguna
og opna pjanginn og þá gýs upp svona graftrarspía, uppí loft, og
eftir tvær mínútur labbar sjúklingurinn út –
brosandi."
(nennti ekki að vitna í þetta skv. APA
)
Já þetta er alveg einstaklega
smekklegt! Síðan að lokum er þessi vísa komin frá
honum:
Hún
gerði það gott hún Guðmunda
Hún
gerði það fyrst með Ámunda
Svo með
Hlöðver og Tý, og svo Hlöðver á ný
og svo
hljómsveit sem var þar í námunda!
P.s svo
endilega kvitta ....þó ekki nema bara til að segja mér
hverjir eru að lesa þetta blogg ....er svo ægilega
forvitin hverjir eru hérna 
»
28.04.2006 18:05:15 / sisi
Ok mér leiðist alveg rosalega mikið
að lesa um sahæfða lyfjafræði og hvað er þá betra en að gera
eitthvað svona:
-
Aldrei í lífi mínu: mun ég
halda með KA
-
Þegar ég var fimm
ára: var ég algjör gribba og ansi ofbeldishneigð

3.
Menntaskóla
árin voru: frábær ...en ekkert á við
háskólaárin
4.
Ég hitti einu
sinni: Sigga Sveins heheh
5.
Einu sinni
þegar ég var á bar: drakk ég aðeins of mikið af
skotum
6.
Síðastliðna
nótt: hef ég sjaldan sofið jafn vel 
7.
Næsta skipti
sem ég fer í kirkju: hmmm engar kirkjuferðir skipulagðar á
næstunni!
8.
Þegar ég sný
hausnum til vinstri sé ég: gluggann á bókasafninu ...sé samt auðvitað
ekki út því það er dregið fyrir
9.
Þegar ég sný
hausnum til hægri sé ég: manneskju vera að læra á næsta
bás
10. Þegar ég verð gömul/gamall: ætla ég að vera
alveg eins og ég er í dag!
11. Um þetta leyti á næsta ári: verð ég
væntanlega enn einu sinni að frumlesa fyrir próf 
12. Betra nafn fyrir mig væri: hmmm hef ekki
hugmynd, lesendur góðir mega endilega koma með tillögur
13. Ég á erfitt með að skilja: þá sem tala ekki
íslensku eða ensku
14. Þú veist mér líkar vel við þig ef: ég
hunsa þig ekki
15. Fyrsta manneskjan til að eignast barn í
þínum vinahóp væri: þetta er nú eiginlega úrelt spurning þar sem
magga er nú búin að því og gott betur
16. Farðu eftir ráðum mínum: njóttu þess að
vera til, gerðu það sem þig langar að gera og ekki pæla í hvað
aðrir hugsa
17. Uppáhalds morgunmaturinn minn
er: verður ekki betra en morgunmaturinn en í afmælinu hans
hauks um daginn
....eggjahræra, beikon, pylsur, baunir, brauð, ávaxtasalat, pasta
og eiginlega bara nefndu það
18. Afhverju myndir þú hata mig: ef þú myndir
slúðra um mig og bera út sögur sem eru ekki sannar!
19. Ég myndi stoppa mitt eigið brúðkaup ef
gaurinn segði vitlaust nafn í brúðkaupinu! heheh ...eða
er nokkuð eitthvað svoleiðis á íslandi!
20. Ég myndi frekar sleikja svínsrass en
að: halda með KA 
21. Bréfaklemmur eru nytsamlegri
en: örugglega ýmislegt en fátt sem ég man eftir í
augnablikinu.
22. Ef ég geri e-ð vel, er það: yfirleitt gert
á síðustu stundu
23. Myndir sem þú fellir tár yfir eru: Alltaf
LaBamba auðvitað og að maður minnist ekki á
Notebook ...ansi
margra vasaklúta mynd! Síðan felli ég alltaf nokkur gleðitár
þegar ég horfi á fever pitch þegar við vinnum liverpool
1989!
En jæja þetta er víst
fínt í bili
Back to the
books!
»
26.04.2006 18:09:44 / sisi
Jæja þá er víst leiðinlegasti tími
ársins enn einu sinni runninn upp, þ.e.a.s endalaus próflestur
með tilheyrandi stressi og alltaf sömu pælingunni “af hverju gat
ég ekki drullast til að byrja fyrr að lesa!!” ....en þrátt fyrir að vera að
fara í alveg viðbjóðslega erfið próf með alveg óendanlega miklu
lesefni get ég huggað mig við að þetta eru ekki nema þrjú próf
þessa önnina þannig að þetta verður örugglega enga stund að líða
og verður pottþétt aldrei jafn mikill viðbjóður og síðasta
próftíð var! ...og síðan er það bara gamla góða mottóið
ÞETTA REDDAST ALLTAF ALLT SAMAN!! ...og þegar þetta verður búið
tekur við sumarfrí, stefni á að bruna beint suður sunnudaginn
14. og svo er það bara vinna á mánudeginum og er ég bara orðin
nokkuð spennt fyrir að hitta alla snillingana á Sóltúni aftur!
Það er svo bara allt útlit fyrir skemmtilegasta sumar ævi
minnar! hef ekki trú á neinu öðru enda er búið að plana allt
alveg í þaula, Mávahlíðin verður án efa heitasti staður
borgarinnar og ekki útlit fyrir mikið afslappelsi ...enda
er það algjör óþarfi svona yfir sumartímann! 
Þannig að þrátt fyrir að leiðast
ægilega yfir endalausum lestri þessa dagana er lífið bara nokkuð
gott og skemmtilegt þessa stundina ....og ekki spillti
fyrir að arsenal er komið í úrslit í meistaradeildinni!!! "Heppna"
ég missti reyndar af leiknum í gær þar sem ég þurfti að vera á
þessum líka stórskemmtilega fundi sem bauð upp á allt sem góður
fundur þarf að bjóða upp á með smá æsingi! En á meðan á
þessu stóð fékk ég beina útsendingu í símann minn og varð ekki
neitt lítið ángæð þegar síðustu tölur komu!
Svona að lokum ætla ég að veita ykkur smá
innsýn í hvað það þarf lítið til að skemmta manni þessa
dagana, var nefnilega að lesa dikt í því stórskemmtilega fagi sem
meinafræði er og þetta leiddi til þess að ég þurfti næstum að fara
út af bókasafninu því ég hló svo mikið:
Spurning í sal: Getur ekki
blóðtappi komið
upp þegar maður er í flugum?..nei ég meina
flugvélum?
Ingvar: Ég verð nú
að viðurkenna að ég veit nú lítið um sjúkdóma í flugum.
  mohahahha ég heyri hann (eða er það ekki alveg
til??) svo alveg fyrir mér! 
»
23.04.2006 13:40:24 / sisi
Já þvílíka snilldin segi ég og skrifa, skellti mér á litlu
hryllingsbúðina í gær í boði Landsbankans!! ...takk fyrir það
Rögnvaldur og félagar! Jæja þá er ég búin að auglýsa þá og
get víst haldið áfram að tala um sýninguna ...en vá
ótrúlega var þetta gaman, ég svoleiðis lifði mig inn í þetta og
leikararnir voru náttúrulega bara frábærir! Ég er samt alltaf jafn
heppin lenti akkúrat beint fyrir aftan örugglega stærsta manninn í
salnum þannig að ég þurfti hálfvegis að liggja ofan á greyið Balla
til að sjá eitthvað og það er ekki laust við að maður sé með eins
og vott af hálsríg í dag! En ég allavega mæli með þessu fyrir þá
örfáu sem eiga eftir að sjá þetta.
Þetta var annars alveg frábær helgi, ótrúlegt en satt þá var
ekkert djamm á mér ...hvernig væri að klappa fyrir því!
Er reyndar með smá samviskubit því ég beilaði á að mæta
í "25 ára" afmælið til Gústa kallsins, sökum mikillar þreytu en
vona nú að hann fyrirgefi mér það En þrátt fyrir þetta
djammleysi lítið sofið og ekkert lesið ...en samt mjög
vel þess virði Föstudagskvöldið var tekið í vídjógláp,
trivial ...þar sem ég sýndi auðvitað mínar bestu hliðar og má
segja að við stelpurnar hafi tekið strákana í þurrt r*******ð!
....og ekki þótti mér það neitt rosalega
leiðinlegt! Ákvað svo að vera alveg rosalega góð við mig í gær
og lærði barasta ekki neitt, gerðist eiginlega bara pínu karlmaður,
svaf fram að hádegi, lá upp í sófa, borðaði nammi, drakk kók og
horfði á fótbolta og til að kóróna sukkið alveg var pöntuð búkollu
pizza í kvöldmatinn! ....við systurnar erum semsagt bara
tvær í kotinu þessa dagana og ég sé semsagt um eldamennskuna!
....og þið getið rétt svo ímyndað ykkur hvað er búið að
vera á boðstólnum þessa dagana, enda nýtir maður tækifærið meðan
mamma sem kaupir ekkert nema einhver fræ, ávexti og grænmeti er í
burtu! En þetta mataræði sem ég er að bjóða upp á hentar mér
reyndar alveg fullkomlega þar sem mig vantar ennþá alveg þrjú kg. í
viðbót til að ná markmiðinu mínu og það þýðir ekkert að slaka á því
prófin og stressið sem því fylgir er víst alveg að skella á og það
felur alltaf í för með sér minni matarlyst hjá mér 
En jæja skólabækurnar bíða mín víst......
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
|