Passaðu þig á rjómanum á
gólfinu ...já
þetta er ekki eitthvað sem maður heyrir oft þegar maður ætlar að
fara á fætur á morgnana en þetta fékk ég samt sem áður að heyra
í morgun! þetta tengist þó ekki einhverju kinkí kynlífi heldur
liggur að baki þessu nokkuð löng saga og ansi skondin ...þó mér
hafi kannski ekki þótt það neitt rosalega fyndið í nótt!
En málið var allavega það að eftir ekki nema 13 tíma
lestur í gær var ég alveg óendanlega þreytt og þótti okkur því
tilvalið að sofa í sveitinni í rúmi sem er já aðeins betra en
rúmið mitt og svo til að fullkomna þetta alveg er náttúrulega
svo yndileg kyrrð í sveitinni og svo framvegis! ...en neinei ekki í þetta
skiptið
Það fyrsta sem við sáum þegar við renndum upp
að húsinu var eitt stykki srákur að pissa fyrir utan og það gaf
manni nú vísbendingu um hvað var framundan ....nefnilega alveg
magnað partý! ég var nú reyndar algjör party pooper fór bara
beint inn í herbergi og þetta er sko NB þriðja djammlausa helgin
mín í röð! já geri aðrir betur, reyndar líka einu djammlausu
helgarnar á árinu ....en það er nú bara aukaatriði!
Ég
hélt nú samt að ég gæti nú alveg sofið þó það væri nú eitt
stykki partý í gangi enda ekki fræg fyrir vandamál með svefn! en
nei það var nú af og frá enda snilldarpartý þarna á ferð með
öllu tilheyrandi eins og bálför, slagsmálum, öskurkeppni og
síðast en ekki síst rjómasprautun á okkur fólkið sem reyndi að
sofa! mjög svo skemmtilegt! ....ég er allavega spennt að fá
að taka þátt í svona partý í framtíðinni þegar tilhugsunin um
endalausan lyfjafræðilestur er ekki að trufla mann! Mér tókst nú
sem betur fer að sofna að lokum eftir að ákveðinn maður hafði
tekið sig til og kýlt mann og annan og bókstaflega hent
mannskapnum út úr húsinu!
En svo maður breytir nú um umræðuefni
þá virðist sumarið vera komið hérna á akureyri, næstum 20 stiga
hiti, sól og blíða og grasið barasta orðið grænt ....og ég inni að læra! pabbi sér
þó auðvitað um sólböðin fyrir mig, enda ekki við öðru að búast
þegar hann er annars vegar! ...Reyndar eru það ömurlega sem fylgir
sumrinu líka mætt á svæðið, þ.e.a.s góðvinkonur mínar
randaflugurnar og mætti ég einni við mikinn fögnuð í morgunsárið og
fylgdu þessa sympatísk viðbrögð, semsagt aukinn hjartsláttur,
æðarnar í húðinni drógust saman, ég fölnaði öll upp, starfsemi
meltingarvegarins minnkaði o.s.frv.... og hver segir svo að maður
sé ekki neitt búinn að læra!! 
En talandi um það þá held ég að ég
reyni nú að fara að byrja þar sem klukkan er víst farin að ganga
tvö!!